Kjörskrá

Gerð kjörskrár

Sveitarstjórnir gera kjörskrár á grundvelli kjörskrárstofna frá Hagstofu Íslands en enginn getur neytt kosningaréttar nema að nafn hans sé á kjörskrá þegar kosning fer fram. Kjörskrá skal lögð fram fyrir almenning í síðasta lagi 30. apríl 2003.

Hverjir eru teknir inn á kjörskrá?
Þeir íbúar sveitarfélags sem uppfylla öll kosningaréttarskilyrði á viðmiðunardegi kjörskrár (5. apríl).  Eftirfarandi eru skilyrði þau er uppfylla þarf:

  1. Vera 18 ára þegar að kosning fer fram.
  2. Vera íslenskur ríkisborgari.
  3. Vera  skráður með lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár fimm vikum fyrir kjördag, þ.e. 5. apríl.

Einnig eru teknir inn á kjörskrá íslenskir ríkisborgarar sem eru búsettir erlendis og hafa náð 18 ára aldri en uppfylla nánar tiltekin skilyrði.  Þessi skilyrði eru:

  1. Íslenskur ríkisborgari sem átt hefur lögheimili hér á landi á kosningarétt í átta ár frá því að hann flutti lögheimili sitt af landinu, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag.
  2. Ef meira en átta ár eru liðin frá því að aðili átti hér síðast lögheimili eins og segir frá í a-lið, getur hann sótt um kosningarétt á þar til gerðu eyðublaði til Þjóðskrár, enda sé hann enn íslenskur ríkisborgari.  Umsókn sem berst með þessum hætti til Hagstofu Íslands skal ekki tekin til greina ef hún berst meira en einu ári áður en réttur skv. a-lið fellur niður.  Þeir sem teknir eru inn á kjörskrá með þessum hætti fara inn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir áttu síðast lögheimili og gildir sú skráning í fjögur ár frá 1. desember næstum eftir að umsókn var lögð fram.

Hvar lenda íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis sem teknir eru inn á kjörskrá ef þeir voru áður með lögheimili í Reykjavík?
Landskjörstjórn ákveður mörk norður- og suðurkjördæmis í síðasta lagi fjórum vikum fyrir kjördag.  Miðast sú skipting við að fjöldi kjósenda að baki hverju þingsæti sé nokkurn veginn jafnmikill og að kjördæmin séu sem samfelldust heild.  Þegar íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis eiga í hlut verður miðað við að þeir sem fæddir eru í fyrri hluta hvers mánaðar verði í suðurkjördæmi og að þeir verði í norðurkjördæmi sem fæddir eru í síðari hluta hvers mánaðar.

Hverjir eru ekki teknir inn á kjörskrá?
Einstaklingur er ekki tekinn inn á kjörskrá í tilteknu sveitarfélagi nema að hann hafi verið skráður með lögheimili í því samkvæmt íbúaskrám þjóðskrár 5 vikum fyrir kjördag.  Það er því hin opinbera skráning í þjóðskrá sem gildir og því ekki hægt að bæta manni inn á kjörskrá í sveitarfélagi sem honum hefur láðst að tilkynna nýtt lögheimili í, til Hagstofu Íslands fyrir viðmiðunardag kjörskrár þann 5. apríl.


Framlagning kjörskrár

Kjörskrá skal liggja frammi fyrir almenningi í a.m.k. 10 daga fyrir kjördag.  Algengast er að hún liggi frammi hjá skrifstofum sveitarfélaganna á almennum skrifstofutíma, en sveitarstjórn er falið að auglýsa framlagningarstað. 


Athugasemdir við kjörskrá

Hver sem er getur gert athugasemdir við sveitarstjórn um að nafn einhvers vanti á kjörskrá eða sé þar ofaukið.  Slíkar athugasemdir er heimilt að gera fram á kjördag.  Komi fram athugasemd um að nafn skuli tekið af kjörskrá skal það þegar tilkynnt hlutaðeigandi einstaklingi.  Sveitarstjórn skal þegar taka til meðferðar athugasemdir er henni berast við kjörskrá og gera leiðréttingu á henni ef við á, en heimilt er að gera slíka leiðréttingu fram á kjördag.  Enn fremur skal sveitarstjórn leiðrétta kjörskrá ef henni berst vitneskja um andlát eða um að einhver hafi öðlast eða eftir atvikum misst íslenskt ríkisfang.  Sveitarstjórn skal þá tilkynna hlutaðeigandi um leiðréttingar á kjörskrá og þeirri sveitarstjórn annarri sem málið getur varðað. 

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.