Tilkynning frá Landskjörstjórn

Landskjörstjórn tekur framboðslista sem bornir eru fram við alþingiskosningar sem fram fara laugardaginn 12. maí 2007 til meðferðar og afgreiðslu á fundi mánudaginn 30. apríl 2007, kl. 17.00 á 2. hæð í Austurstræti 8-10 Reykjavík (gengið inn frá Vallarstræti).

Eru umboðsmenn stjórnmálasamtaka, sbr. 40. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, hér með boðaðir á þann fund.

 

Reykjavík 26. apríl 2007

Landskjörstjórn



 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.