Auglýsing frá landskjörstjórn varðandi mörk milli Reykjavíkurkjördæmanna
Frá landskjörstjórn, 13. apríl 2007.
Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, er landskjörstjórn falið að ákvarða mörk milli Reykjavíkurkjördæmis suður og Reykjavíkurkjördæmis norður. Skal við það miðað að kjósendur í hvoru kjördæmi fyrir sig að baki hverju þingsæti séu nokkurn veginn jafnmargir og að hvort kjördæmi sé sem samfelldust heild.
Ákvörðun um mörk kjördæma í Reykjavík ber að miða við íbúaskrá Þjóðskrár fimm vikum fyrir kjördag og skulu þau auglýst í Stjórnartíðinum eigi síðar en fjórum vikum fyrir kjördag. Birtist sú auglýsing í dag, föstudag 13. apríl 2007, í Stjórnartíðindum og er hún svohljóðandi:
Landskjörstjórn hefur ákveðið með vísan til 1. mgr. 7. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, sbr. og 5.–6. tölul. 1. mgr. 6. gr. sömu laga, að mörk Reykjavíkurkjördæma suður og norður verði eftirfarandi fyrir alþingiskosningar 12. maí 2007:
Mörk Reykjavíkurkjördæma suður og norður skulu dregin um miðlínu eftirfarandi gatna frá vestri til austurs: Eftir Hringbraut (frá Ánanaustum), gömlu Hringbraut, Miklubraut, Ártúnsbrekku og Vesturlandsvegi en frá Vesturlandsvegi á móts við Sóltorg (ISN93 hnit: 364886, 405744) skal dregin bein lína í miðpunkt Sóltorgs og þaðan skulu mörkin dregin eftir miðlínu Kristnibrautar, Gvendargeisla og Biskupsgötu að Reynisvatnsvegi. Frá gatnamótum Biskupsgötu og Reynisvatnsvegar skal dregin bein lína að borgarmörkum (ISN93 hnit: 369110, 405535).
Meðfylgjandi eru tveir uppdrættir merktir fylgiskjal I og fylgiskjal II sem sýna mörk milli Reykjavíkurkjördæma með blárri línu.
Þá hefur landskjörstjórn ákveðið með vísan til 2. mgr. 23. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, að þeim sem taka ber á kjörskrá skv. b-lið 1. mgr. 23. gr. sömu laga skuli skipt milli Reykjavíkurkjördæma suður og norður þannig að í Reykjavíkurkjördæmi suður komi allir þeir sem fæddir eru 1.–15. dag mánaðar en í Reykjavíkurkjördæmi norður komi þeir sem fæddir eru 16. dag mánaðar eða síðar. Sama regla gildir um þá sem skráðir eru óstaðsettir í hús í Reykjavík.
Kjósendur sem búa við sunnanverða Hringbraut, gömlu Hringbraut, Miklubraut eða Vesturlandsveg verða á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi suður en kjósendur sem búa við þessar götur að norðanverðu eru á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi norður. Kjalarnes (póstnúmer 116) tilheyrir Reykjavíkurkjördæmi norður.
Grafarholtshverfi (póstnúmer 113), austan Vesturlandsvegar, var áður innan marka Reykjavíkurkjördæmis norður en skiptist nú milli suður- og norðurkjördæmis um Kristnibraut, Gvendargeisla og Biskupsgötu eins og nánar kemur fram í auglýsingu landskjörstjórnar. Kjósendur sem búa sunnan við þessar götur verða á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi suður en þeir sem búa við þessar götur að norðanverðu verða á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Samkvæmt íbúaskrá Þjóðskrár fimm vikum fyrir kjördag eru 87.173 kjósendur alls á kjörskrárstofni í Reykjavík. Skipting milli kjördæma er þannig að í Reykjavíkurkjördæmi suður eru 43.398 kjósendur eða 49,78% af fjölda kjósenda í Reykjavík en í Reykjavíkurkjördæmi norður eru 43.775 kjósendur eða 50,22% af fjölda kjósenda í Reykjavík.
Fyrir alþingiskosningarnar 12. maí 2007 hefur landskjörstjórn aðsetur hjá nefndasviði Alþingis í Austurstræti 8–10, 2. hæð.
Í landskjörstjórn eiga sæti:
Gestur Jónsson hrl., formaður,
Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari, varaformaður,
Ástráður Haraldsson hrl.,
Guðríður Þorsteinsdóttir hrl. og
Gísli Baldur Garðarsson hrl.
Uppdrættina má sjá hér:
Kjörhverfi og kjörstaðir við alþingiskosningar 12. maí 2007
Mörk kjörsvæða í Grafarholti við alþingiskosningar 12. maí 2007

