Fréttir og tilkynningar

Auglýsing frá landskjörstjórn um úrslit kosninga til Alþingis 12. maí 2007

Landskjörstjórn gjörir kunnugt að eftirtaldir frambjóðendur náðu kjöri sem þingmenn í almennum kosningum til Alþingis sem fram fóru laugardaginn 12. maí 2007: Lesa meira
 

Úrslit alþingiskosninganna 12. maí 2007

Úrslit nýliðinna alþingiskosninga er birt hér með fyrirvara um auglýsingu Landskjörstjórnar sem birt verður hér Lesa meira
 

Kjörfundarupplýsingar

Upplýsingar um kjörfundi í þeim stærri sveitarfélögum sem birta þær á vef sínum. Lesa meira
 

Auglýsing frá landskjörstjórn um framboð við alþingiskosningar 12. maí 2007

Samkvæmt 44. gr. laga um kosningar til Alþingis er hér með gert kunnugt að við alþingiskosningar 12. maí 2007 verða þessir listar í kjöri: Lesa meira
 

Auglýsing frá landskjörstjórn

Landskjörstjórn gjörir kunnugt með vísan til 44. gr. laga um kosningar til Alþingis að bornir hafa verið fram eftirtaldir listar í öllum kjördæmum landsins við alþingiskosningarnar sem fram eiga að fara 12. maí 2007: Lesa meira
 

Tilkynning frá Landskjörstjórn

Landskjörstjórn tekur framboðslista sem bornir eru fram við alþingiskosningar sem fram fara laugardaginn 12. maí 2007 til meðferðar og afgreiðslu á fundi mánudaginn 30. apríl 2007, kl. 17.00 á 2. hæð í Austurstræti 8-10 Reykjavík (gengið inn frá Vallarstræti).

Lesa meira

 

Kjósendur á kjörskrá

Kjósendur á kjörskrá eru 221.368 kjósendur og er fjöldi karla og kvenna svo til jafn. Konur eru 110.969 en karlar 110.399. Konur eru því 570 eða 0,5% fleiri en karlar.. Hér má sjá fjölda kjósenda í hverju kjördæmi fyrir sig. Lesa meira
 

Auglýsing um aðsetur og símanúmer yfirkjörstjórna

Hér fylgir listi yfir aðsetur og símanúmer yfirkjörstjórna á kjördag. Einnig fylgja með upplýsingar um símanúmer ráðuneytisins og Þjóðskrár sem svarað verður í á kjördag frá kl. 10:00 ? 22:00. Lesa meira
 

Auglýsing frá landskjörstjórn varðandi mörk milli Reykjavíkurkjördæmanna

Landskjörstjórn hefur eins og lög gera ráð fyrir, ákvarðað mörk milli Reykjavíkurkjördæmis suður og Reykjavíkurkjördæmis norður. Lesa meira
 

Auglýsing um greiðslur til sveitarfélaga vegna kosninga til Alþingis 12. maí 2007

Með 14. gr. laga nr. 162 21. desember 2006 var ákveðið að greiða skuli úr ríkissjóði kostnað sem sveitarfélög bera af kosningum til Alþingis við störf undirkjörstjórna og kjörstjórna, og fyrir kjörgögn, áhöld, húsnæði til kjörfunda og atkvæðiskassa, eins og rakið er í c-lið 123. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Lesa meira
 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga 12. maí 2007

Utanríkisráðuneytið hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem vakin er athygli á því að utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga 12. maí 2007 hefst 17. mars nk. Þá er birtur listi yfir hvar og hvenær hægt er að kjósa hjá ræðismönnum og á sendiskrifstofum Íslands. Lesa meira
 

Söfnun á vefsíðum vegna alþingiskosninga 2007

Landsbókasafn Íslands ? Háskólabókasafn safnar af Netinu efni sem varðar alþingiskosningar 2007. Tekið er afrit af vefsíðum sem geyma efni um kosningarnar og aðdraganda þeirra, svo sem umræður, greinaskrif o.s.frv. Efnið fer inn í sérstakt gagnasafn í Þjóðarbókhlöðu. Lesa meira
 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Reykjavík

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna Alþingiskosninganna 12. maí nk. hefst við embætti sýslumannsins í Reykjavík þ. 17. mars nk. og er opin á skrifstofutíma á milli 9-15,30 virka daga. Lesa meira
 

Kosning.is opnar

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið opnar í dag, 2. mars, upplýsingavef vegna alþingiskosninganna 12. maí næstkomandi. Á upplýsingavefnum, sem hefur slóðina www.kosning.is, er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar um atriði sem lúta að næstu alþingiskosningum. Lesa meira
 

Auglýsing um almennar kosningar til Alþingis

Með vísun til 45. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33 17. júní 1944, sbr. 15. gr. stjórnskipunarlaga nr. 56 31. maí 1991, sbr. og 20. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24 16. maí 2000, er hér með ákveðið að almennar reglulegar kosningar til Alþingis skuli fram fara 12. maí 2007 Lesa meira
 

Algengar spurningar og svör

Yfirlit algengustu spurninga og svara þeirra er nú birt. Nokkuð margar fyrirspurnir hafa borist og bætist stöðugt í safnið. Á sömu síðu er að finna fyrirspurnarform og eru lesendur hvattir til að nýta sér að spyrja um hvað það sem vefst fyrir þeim er varðar komandi alþingiskosningar. Lesa meira
 

Hvar er kosið utan kjörfundar hér á landi?

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hérlendis fer fram hjá hreppstjórum og sýslumönnum um land allt. Hér að neðan er listi sýslumanna og upplýsingar um aðsetur þeirra. Lesa meira
 

Úthlutun jöfnunarsæta 10. maí 2003

Úthlutun jöfnunarsæta við alþingiskosningarnar og útreikningar eru sýnd hér   Lesa meira
 

Úthlutun þingsæta 10. maí 2003

Upplýsingar um úthlutun kjördæmissæta og jöfnunarsæta til framboða og yfirlit heildarúthlutunar þingsæta eftir kyni. Lesa meira
 

Breyting á kjördæmissætum í Norðvesturkjördæmi og Suðvesturkjördæmi.

Auglýsing frá landskjörstjórn um breytingu á kjördæmissætum í Norðvesturkjördæmi og Suðvesturkjördæmi. Lesa meira
 

Um útstrikanir

Nokkur breyting var gerð á reglum um útstrikanir við samþykkt nýrra kosningalaga. Hér er að finna kafla úr skýrslu forsætisráðherra um endurskoðun á kjördæmaskipun og tilhögun kosninga til Alþingis sem fjallar um þær breytingar. Lesa meira
 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.