Almennt um framkvæmdaraðila alþingiskosninga

Framkvæmd alþingiskosninga er samvinnuverkefni nokkurra opinberra aðila. Má þar helst nefna dómsmálaráðuneytið, utanríkisráðuneytið, sveitarstjórnir, Hagstofu, sýslumenn og kjörstjórnir.  Þessir aðilar skipta með sér verkum og vinna að því að heildarframkvæmd kosninga fari fram með skýrum og traustum hætti.   Við alþingiskosningar starfa nokkrar tegundir kjörstjórna, en það eru landskjörstjórn, yfirkjörstjórnir, undirkjörstjórnir og aðrar kjörstjórnir sveitarfélaga. 


 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.